þriðjudagur, júní 20, 2006

Tónleikar í Ráðhúsi 16. hverfis Parísar 17. júní 2006 (í vinnslu)

Ráðhús 16. hverfi beið okkar með dulmögnuðu yfirbragði sem oft einkennir gamlar byggingar meginlandsins. Framandleikinn fólst þó ekki síst í hitanum sem var úti. Á Bretagne skaga hafði verið skýjað og jafnvel hálf íslenskt veður og fór hitinn mest í þægilegar 15 gráður. Í París var sagan önnur. Á hádegi á tónleikadaginn var hitinn þegar kominn í ca. 27 stig. Mynd kemur síðar.

Að lokinni prufu í ráðhúsinu fyrir hádegi (enginn flygill fyrir Lenku) og ljúfri heimsókn til Sendiherrans og frú Nínu afklæddist hluti kórsins í rútunni í stíl við hitann úti fyrir. Mynd kemur síðar.

Hvíldartímanum að þessu loknu og að lokinni heimsókn í Eiffel turninn og Notre Dame, sem lýst var í síðustu sögu, var vel varið af hópstjórum. Strákarnir voru kyrrsettir, helst í láréttri stöðu á meðan fægt var og pússað, straujað og strokið. Ekki tók betra við þegar í ráðhúsið var komið. Hitinn í París hafði ekki bara hækkað heldur virtist hann einnig hafa stigmagnast. Glampinn a gljáfægðum fótabúnaði ungmennanna komst ekki í kvartkvisti við við sjálfa sólina sem virtist allt ætla lifandi að kæfa.

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?